Til baka

Endoca CBD húðolía 300mg 3% 10ml

Endoca CBD húðolían lágmarkar breytingar í litrófi efnasambanda iðnaðarhampsins (full spectrum) með eins varfærnu hitunarferli og frekast er unnt. Olían er fáanleg í 10ml flösku með dreypara (pípettu). Í hverri flösku eru um 300 dropar og eru því ýmist u.þ.b....

5.390 kr.

5.390 kr.

vnr: ENDO4008

Endoca CBD húðolían lágmarkar breytingar í litrófi efnasambanda iðnaðarhampsins (full spectrum) með eins varfærnu hitunarferli og frekast er unnt. Olían er fáanleg í 10ml flösku með dreypara (pípettu). Í hverri flösku eru um 300 dropar og eru því ýmist u.þ.b. 1mg eða 5mg af CBD í hverjum dropa. Olían er bæði lífræn og vegan og THC innihald er minna en 0.2%.

Uppistaða hinnar fjölþættu virkni í húðolíunni er fólgin í CBD kannabínóíðum. Að auki eru í olíunni um 80 aðrir kannabínóíðar hampsins og fjöldi mikilvægra vítamína og steinefna ásamt ilm- og bragðefnum plöntunnar sem gjarnan eru talin eiga ríkan þátt í virkni olíunnar.

Endoca húðolían inniheldur engin gerviefni. Í henni, eins og í ýmsum öðrum góðum CBD vörum, eru einungis efni sem óhætt er að borða (e. eatable). Öll innihaldsefni eru náttúruleg og lífræn og allt vinnsluferli Endoca er sömuleiðis án hvers kyns tilbúinna eða ólífrænna efna.

Mjög er einstaklingsbundið hve mikið magn af CBD hentar hverjum og einum. Veigamesti þátturinn snýst um viðfangsefnið. Mildari olían er einkum notuð af þeim sem vilja einfaldlega stuðla að betri almennri líðan. Aðrir nýta CBD t.d. til að draga úr verkjum eða fást við tiltekin afmörkuð vandamál. Þá þarf gjarnan meira magn. Aldur og líkamsþyngd eru á meðal annarra þátta sem haft geta áhrif á æskilega notkun. Endoca ráðleggur viðskiptavinum sínum að byrja í litlum skömmtum fyrstu dagana en fikra sig síðan áfram þar til tilætluðum áhrifum er náð. Ekki er óalgengt að fólk noti 10-20mg á dag þegar ekki er við sérstök vandamál að etja en mun meira, t.d. 50-70mg daglega, í sérstökum viðfangsefnum. Sumir ganga ennþá lengra og almenna reglan er sú að líkaminn beiti einhverskonar „frávísunarmerkjum“ ef óþarflega mikið magn af CBD er notað.

Hemp seed oil (50%), Omega 3 (0.75g), Omega 6 (2.5g), Vitamin E (5mg) phytocannabinoids cannabidiol 15% (CBD 1500mg), low concentrations of the natural forms of (CBC, CBG, CBN). Terpenes: Myrcene, Limonene, Alpha & Beta-pinene, Linalool, B-caryophyllene, Caryophyllene oxide, Terpinolene, and Humulene. Other natural molecules: Cannabis plant waxes, flavonoids (Quercetin, Apigenin, and Cannaflavin), alkanes, nitrogenous compounds, amino acids, ketones, glycosides, vitamins, pigments, water, cofactors, and co-nutrients.