Notkun Lyfjaver á vefkökum

Lyfjaver notar vefkökur í þeim tilgangi að bæta virkni vefsvæðis Lyfjaver með það að markmiði að bæta upplifun og þarfir notenda. Það er stefna Lyfjaver að nota vefkökur með ábyrgum hætti.

1. Hvað eru vefkökur?

Vefkaka er lítil textaskrá sem er vistuð á tölvu eða öðrum snjalltækjum þegar vefsvæði er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskrá er geymd á vefvafra notenda og vefurinn þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þannig er hægt að senda ákveðnar upplýsingar í vafra notenda sem getur auðveldað aðgang að ýmsum aðgerðum.

2. Notkun Lyfjavers á vefkökum

Vefur Lyfjaver notar bæði vefkökur frá fyrsta og þriðja aðila. Vefkökur frá fyrsta aðila eru vefkökur sem senda eingöngu upplýsingar til Lyfjavers. Vefkökur frá þriðja aðila eru tilkomnar vegna þjónustu sem Lyfjaver notar og senda upplýsingar til vefsvæðis í eigu þriðja aðila. Viðkomandi aðilar kunna einnig að tengja upplýsingar fengnar af vefsvæði Lyfjaver við aðrar upplýsingar sem notendur hafa látið þeim í té, eða upplýsingar sem þeir hafa safnað með notkun notenda á þeirra þjónustu.

Þær vefkökur sem vefur Lyfjaver notar og í hvaða tilgangi eru eftirfarandi:

Nauðsynlegar vefkökur

Vefkökur sem eru Lyfjaver ómissandi til þess að vefsvæðin virki eins og ætlast er til. Þær gera notenda kleift að flakka á milli vefsíðna á vefsíðunni án þess að þurfa að skrá sig inn á hverja síðu.

Lyfjaver hefur lögmæta hagsmuni af vinnslu persónuupplýsinga um notenda í gegnum nauðsynlegar kökur. Lyfjaver notar þær einnig til að muna eftir notanda næst þegar hann heimsækir vefinn, s.s. tungumálastillingar og val notanda á vistun kaka á vef hans.

Tölfræðikökur

Lyfjaver notar tölfræði- og aðlögunarkökur til að greina umferð um vef Lyfjaver og safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun vefsvæðisins og árangur markaðsherferða.

Upplýsingarnar eru notaðar til að þróa og bæta þjónustu vefsins með því að fá innsýn í notkun og gera leit að tilteknu efni auðveldari. Einnig eru kökurnar nýttar til þess að aðlaga vefsíður og forritað þörfum hvers og eins til að bæta upplifun viðskiptavina

Upplýsingar sem safnað er af þriðja aðila fela ekki í sér viðkvæmar persónuupplýsingar sem gera kleift að bera kennsl á notandann (t.d. nafn, kennitölu eða netfang) og hægt er að slökkva á notkun þeirra í stillingum ef þess er óskað.

Þriðja aðila kökur

Þessar kökur (e. third-party cookies) nota vefljós, pixlamerki og svipaða tækni til að safna og nota ákveðnar upplýsingar um athafnir notenda á netinu, á vefsíðum bankans og/eða öðrum vefjum eða farsímaforritum, til að álykta um áhugamál notenda og birta markvissar auglýsingar.

Lyfjaver notar slíkar kökur á vef sínum (m.a. frá Google og Facebook). Kökur þriðja aðila gera það að verkum að þessir aðilar geta þekkt tæki aftur þegar notandi heimsækir vefsvæðið og jafnvel önnur vefsvæði. Þessar kökur eru notaðar til þess að gera auglýsingar meira viðeigandi fyrir notenda út frá ályktuðum áhugamálum þeirra.

Kökur frá þriðja aðila safna einnig upplýsingum um heimsóknir viðskiptavina á vefi Lyfjaver til að fylgjast með árangri auglýsinga og markaðsstarfsemi þeirra á netinu (til dæmis hversu oft notandi smellir á auglýsingu okkar). Upplýsingar sem safnað er af þriðja aðila fela ekki í sér persónulegar upplýsingar sem gera kleift að bera kennsl á notandann. Á grundvelli þess áskilur Lyfjaver sér rétt til að birta notendum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Facebook og Google. Þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar geta slökkt á notkun á kökum.

3. Slökkva á notkun á vefkökum

Notendur geta og er ávallt heimilt að stilla vefvafra sína þannig að notkun á kökum er hætt, þannig að þær vistast ekki eða vefvafrinn biður um leyfi notenda fyrst. Slíkar breytingar geta dregið úr aðgengi að tilteknum síðum á vefsvæðinu eða vefsvæðinu í heild sinni.

Á vefsíðum þriðja aðila, líkt og Google Analytics og Facebook, má finna nánari upplýsingar um hvernig má slökkva á notkun á kökum í stillingum (e. opt out). Auk þess að hafna kökum geta notendur sett upp afþökkunarviðbótina frá Google Analytics í vafranum, sem kemur í veg fyrir að Google Analytics geti safnað upplýsingum um heimsóknir þínar á vefsvæði.

4. Hversu lengi eru vefkökur á tölvum/snjalltækjum notenda?

Vefkökur eru misjafnar að eðli. Sumar eru lotuvefkökur og eyðast þegar vafranum er lokað. Aðrar vefkökur eru geymdar í tölvum notenda í þann tíma sem er nauðsynlegur bankanum að varðveita vefkökuna en þó að hámarki í 24 mánuði frá því að notandi heimsóttir síðast vefsíðu Lyfjavers nema notandi hafi eytt henni.

5. Meðferð Arion banka á persónuupplýsingum

Á vefsíðu Lyfjaver, lyfjaver.is/personuvernd, má finna persónuverndaryfirlýsingu Lyfjaver sem veitir upplýsingar um persónuvernd í störfum Lyfjavers. Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á vefkökum verða meðhöndlaðar og unnið með í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuververnd og vinnslu persónuupplýsinga. Lyfjaver lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í öðrum tilgangi en að ofan greinir og upplýsingarnar verði ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu. Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.