Spurt og svarað

Netapótek

Frí heimsending með Lyfjavers skutlu eða Póstinum er í boði ef pantaðir eru að minnsta kosti tveir lyfseðlar, óháð verði. Einnig ef upphæð pöntunar fer yfir 9.900 kr.

Lyfjaver kappkostar að halda álagningu á lyf og aðrar vörur í lágmarki og þarf því að hafa hóflegt lágmark fyrir fría heimsendingu.

Ef pöntun nær ekki lágmarki kostar heimsending innanlands með Lyfjavers skutlu eða Póstinum 1.499.-

Afhending á Pósthús eða í Póstbox kostar 990 ef lágmarki er ekki náð.

Kostnaður við sendingar til annarra landa fylgir verðskrá Póstsins

Boðið er upp á heimsendingu samdægurs á höfðuborgarsvæðinu með Lyfjavers skutlunni. Panta þarf fyrir kl 13.

Afhending með Póstinum er 1-3 virkir dagar. Pósturinn sækir pantanir til Lyfjavers síðdegis alla virka daga. Ef pöntun berst fyrir kl 14 eru allar líkur á því að hún fari í vinnslu sama dag hjá Póstinum og mögulega í útkeyrslu næsta dag en það er háð áfangastað (útkeyrsla hjá Póstinum er alla daga nema sunnudaga). 

Afhending í Póstbox er 0-1 virkur dagur. Dreift er í Póstboxin á Suðvesturhorninu á laugardögum. Eingöngu eru afhentar pantanir sem innihalda ekki lyf (lyfseðilsskyld lyf og lausasölulyf)

Lyfjasendingar þarf að geyma við rétt hitastig og þar sem ekki er hægt að tryggja geymsluaðstæður í Póstboxum er ekki hægt að fá afhent lyf með þeim sendingarmáta.

 

Já, í Netapóteki Lyfjavers getur þú skoðað rafræna lyfseðla þína og barna þinna, 15 ára og yngri. Þú þarft að skrá þig inn með rafrænum skilríkjum.

Já, í Netapóteki Lyfjavers getur þú skoðað rafræna lyfseðla barna þinna, 15 ára og yngri. Þú þarft að skrá þig inn með rafrænum skilríkjum.

Í Netapóteki Lyfjavers hefur þú mjög gott yfirlit yfir möguleg samheitalyf,  þú getur valið þann möguleika sem þér hentar.

Já, við afgreiðslu lyfja í Netapótek Lyfjavers tekur það mið af greiðslustöðu þinni hjá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) og reiknar út rétt verð á þínum lyfjum. Þú getur skoðað þrepastöðu þína hjá SÍ en greiðsluþátttaka sjúkratrygginga er ákvörðuð út frá því í hvaða þrepi þú ert.

Já, kælilyf eru send heim í kæliumbúðum.

Já, Lyfjaver sendir lyf um allt land. Pósturinn sér um sendingar á landsbyggðinni en hægt er að velja um heimsendingu með Lyfjavers skutlunni eða Póstinum á höfuðborgarsvæðinu.

Greitt er fyrir pantanir með greiðslukorti. Tekið er við helstu kredit- og debitkortum. Ekki er hægt að greiða fyrir pantanir við afhendingu.

Ef vara er ekki til eða ekki er hægt að afgreiða hluta eða alla pöntun af einhverri ástæðu er endurgreiðsla framkvæmd af Lyfjaveri inn á sama greiðslumáta og greitt var með. Endurgreiðslur á Pei og Netgíró sjást strax á yfirliti en endurgreiðslur á greiðslukort fara í gegnum viðskiptabanka og getur tekið nokkra daga að sjást á yfirliti. Endurgreiðslur eru framkvæmdar að jafnaði í síðasta lagi næsta virka dag.

 

Lyfjaskömmtun

Þeir sem  sækja skömmtuð lyf í Lyfjaver greiða fyrir sótt lyf á staðnum. Heimsend lyf er ódýrast og þægilegast að greiða með kreditkorti (boðgreiðsla). Einnig má skuldfæra af debetkorti (beingreiðsla) og svo er hægt að fá sendan greiðsluseðil.

Með því að sýna aðhald og halda kostnaði í lágmarki höfum við hjá Lyfjaveri getað boðið þessa þjónustu á mjög hagstæðu verði.  Lyfjaskömmtun þýðir nær undantekningarlaust lægri lyfjakostnað þar sem viðskiptavinir greiða einungis fyrir þau lyf sem eru í lyfjaskammtinum og þurfa því ekki að kaupa heilar pakkningar sem oft þarf að farga ef breytingar verða  á ávísuðum lyfjum. Skömmtunargjald er  2.490.- krónur fyrir 4ra vikna lyfjarúllu, 1.245.- krónur fyrir 2ja vikna rúllu og 890.- krónur fyrir 1 vikna lyfjarúllu. Kjósi fólk að fá lyfin send heim er heimsendingargjald 1.390.- krónur.

Lyfjaver hefur frá stofnun verið leiðandi í lágu lyfjaverði eins og fjölmargar verðkannanir síðustu ára hafa sýnt. Allt frá árinu 2005 hefur Lyfjaver t.d. oftast verið með lægsta verð í verðkönnunum ASÍ. Þetta gerir lyfjaskömmtun hjá Lyfjaveri að sérlega hagkvæmum kosti fyrir viðskiptavini því þeir greiða einungis fyrir þau lyf sem eru skömmtuð hverju sinni en ekki fyrir heilar pakkningar og að auki eru lyfin hjá Lyfjaveri á mjög hagstæðu verði.

Algengustu ástæðurnar fyrir því að reikningur er hærri en venjulega þó engu hafi verið breytt varðandi lyfjaskömmtunina eru:

  • Fyrsta þrep hjá Sjúkratryggingum: Einu sinni á ári hefst nýtt 12 mánaða greiðslutímabil hjá Sjúkratryggingum Íslands. Fyrsta greiðsluþrep lyfjakaupa greiðir einstaklingur að fullu og Sjúkratryggingar taka þá ekki þátt í lyfjakostnaðinum. Nánari upplýsingar um greiðsluþrep Sjúkratrygginga er að finna á vefsíðu Sjúkratrygginga Íslands https://www.sjukra.is/lyf-og-hjalpartaeki/lyf/greidsluthrep/
    Hægt er að sjá þrepastöðu hjá SÍ á mínum síðum hér í Netapótekinu með því að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
  • Það eru tvær lyfjarúllur á reikningnum: Algengasta stærð á lyfjarúllu eru 28 dagar. Þetta þýðir að á 365 daga tímabili myndast 13 lyfjarúllur. Af þessari ástæðu koma tvær rúllur á mánaðarlegan reikning, einu sinni á ár

Lyf og aðrar vörur eru afhentar gegn staðgreiðslu eftir þeim afhendingareglum sem eru í gildi. Viðskiptavinir í skömmtun og heimsendingu leggja inn greiðslukortaupplýsingar hjá Lyfjaveri og fá vörur afhentar í reikning. Sendlar á vegum Lyfjavers taka ekki við greiðslum frá viðskiptavinum og ferðast aldrei með peninga á sér.

Ýmsar upplýsingar er að finna á heimasíðu Lyfjavers. Einnig er hægt að hafa samband við lyfjafræðinga Lyfjavers sem veita allar frekari upplýsingar. Á heimasíðu Lyfjastofnunar http://serlyfjaskra.is er einnig að finna upplýsingar um skráð lyf Íslandi.

Hjá Lyfjaveri þarf skjólstæðingur ekki að verða fyrir neinum óþægindum þó gerðar séu breytingar á lyfjagjöfinni. Ef það reynist nauðsynlegt að breyta lyfjaskammti hefur læknirinn samband við Lyfjaver og tilkynnir um breytingarnar sem koma inn við næstu lyfjaskömmtun.  Ef nauðsynlegt reynist að breyta lyfjagjöfinni strax er metið hvort hægt sé að skammta aukarúllu sem tekin er samhliða aðalrúllu eða hvort þurfi að útbúa nýja rúllu.

Að öllu jöfnu líða 1-2 dagar frá því við hjá Lyfjaveri tökum við lyfseðli með ósk um lyfjaskömmtun þar til fyrsti skammtur er tilbúinn en við leysum málin samdægurs sé þess óskað.

Einn af kostunum við skömmtunarlyfseðil er að hann hefur lengri líftíma en venjulegir lyfseðlar. Skömmtunarlyfseðill gildir í allt að 12 mánuði fyrir öll lyf á meðan hefðbundnir seðlar gilda mun skemur. Þetta þýðir tímasparnað, minna umstang og lægri lyfjakostnað fyrir þá sem eru með skömmtunarlyfseðla.

Þeir sem vilja komast í lyfjaskömmtun hjá Lyfjaveri hafa samband í síma 533 6100 og fá allar frekari upplýsingar.  Síðan er gangurinn sá að láta þarf lækni sem ávísar lyfjunum vita. Læknirinn skrifar þá út sérstaka skömmtunarlyfseðla. Þægilegast er ef læknirinn sendir lyfseðlana rafrænt beint til Lyfjavers. Síðan er gott að hringja í lyfjafræðing hjá Lyfjaveri eða koma í heimsókn á Suðurlandsbraut 22 og fara yfir málin. Lyfjafræðingar veita þá allar frekari upplýsingar ef eitthvað er óljóst. 

Passa þarf að fá fjölnota lyfseðla fyrir óskömmtuð lyf.

Þegar fyrsti lyfjaskammtur er afgreiddur til sjúklings fylgir skömmtunarkort með helstu upplýsingum um hvaða lyf eru í skömmtun, hvenær skömmtunin hefst, hvernig á að taka lyfin og hvað lyfseðlar gilda lengi. Skömmtunarkortið geymir sjúklingurinn hjá sér og getur því með auðveldum hætti áttað sig á stöðunni hverju sinni. Nýtt skömmtunarkort fylgir svo skömmtun ef breyting hefur orðið á lyfjunum, annars ekki.

Hver lyfjaskömmtun er til 2ja eða 4ra vikna. Ef engar upplýsingar berast Lyfjaveri um breytingar þá sér Lyfjaver um að útbúa nýjan skammt áður en síðasti skammtur klárast. Hægt er að velja á milli þess að sækja lyfin í Lyfjaver eða fá heimsend lyf gegn vægu heimsendingargjaldi.

Lyf sem tekin eru fyrir utan skömmtunina þarf sjúklingurinn af sjá um sjálfur. Hægt er að hafa samband við Lyfjaver og óska eftir að fá slík lyf heimsend eða afgreidd með skömmtuninni sé lyfseðill til staðar hjá Lyfjaveri.

contact figure
Sendu okkur línu

Takk fyrir að hafa samband

Við munum svara beiðni þinni eins fljótt og kostur er

Get ég aðstoðað?

Contact icon