Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Ventoline - Innúðalyf, dreifa
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Ventoline - Innúðalyf, dreifa

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: R03AC02
ATC Heiti: Salbutamolum
Norrænt Vörunúmer: 149203
Markaðsleyfishafi: GlaxoSmithKline Pharma A/S
Skráningardagsetning: 01.04.2019
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Ventoline innheldur skjótvirkandi berkjuvíkkandi lyf sem verkar með því að slaka á vöðvum í
öndunarveginum innan nokkurra mínútna, og upphefur þannig þrengingu í berkjunum sem kemur fram
í tengslum við astmakast. Loftið kemst þannig auðveldar í gegn og auðveldara verður að anda.

Ventoline verkar aðeins í skamman tíma og það er yfirleitt notað með öðru fyrirbyggjandi lyfi eftir því
hversu alvarlegur astminn er.

Ventoline innúðalyf má nota við astma og öðrum öndunarerfiðleikum.

Ef astminn er virkur (þ.e. ef einkenni koma oft fram eða köstin koma oftar fram eða líkamsástand er
ekki gott) skaltu hafa samband við lækninn. Til að ná stjórn á astmanum getur verið að læknirinn velji
að ávísa eða auka skammta af lyfjum eins og innöndunarbarksterum.

Fullorðnir og börn frá 4 ára aldri geta notað Ventoline innúðalyf.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Ventoline inniheldur

Virka innihaldsefnið: Salbútamól (sem salbútamólsúlfat).
Annað innihaldsefni: Norflúran.

Lyfið inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir.
Hvert innúðatæki inniheldur 18 g af HFC-134a (einnig þekkt sem norflúran eða HFA 134a)
sem samsvarar 0,0257 tonnum CO2-ígilda (hnatthlýnunarmáttur = 1430).

Útlit Ventoline og pakkningastærðir

Útlit:
Ventoline innúðalyf, dreifa er í úðastauk sem inniheldur hvíta til hvítleita dreifu til innöndunar.

Pakkningastærðir:
Ventoline innúðalyf, dreifa án skammtateljara inniheldur 200 skammta.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi:
GlaxoSmithKline Pharma A/S
Delta Park 37
2665 Vallensbæk Strand
Danmörk

Framleiðandi:
Glaxo Wellcome SA, Avenida de Extremadura, 09400 Aranda de Duero (Burgos), Spánn

eða

Glaxo Wellcome Production, Zone Industrielle No. 2, 23 rue Lavoisier, 27000 Evreux, Frakkland

Umboð á Íslandi
Vistor ehf., sími: 535-7000

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í mars 2026.